Suscito
Imagination is more important than knowledge
1.5.07
Kominn út í neyslu
Hátindur Verkalýðsdagsins líður hjá á meðan ég sit hér og meðtek eitthvað sem kallast á góðri íslensku Brain+. Á eftir ætla ég síðan að prófa kókaín, maríjúana og svo ef ég þori ætla ég að prófa peyote sem á víst að vera það allra sterkasta. Allt er þetta hluti af því nýjasta í binaural wave tækni sem byggist á því að breyta skapi, hegðun og hugarfari með því einu að hlusta á hljóðfæl sem á að örva heilabylgjur. Allt hátæknilegt og engir timburmenn. Núna er ég búinn að hlusta á 64% af þessu svokallaða Brain+ sem var merkt (VERY STRONG DOSE) og ég finn bara ekki fyrir neinu öðru en hausverk og pirringi á þessu hljóði sem ég er að hlusta á.

Fyrirtækið i-doser sem rekur síðuna www.i-doser.com er sökudólgurinn á bak við þetta fyrirbrigði og þeir lofa jafnvel lækningu við mígreni með því einu að hlusta á binaural beats. Einni kalla þeir þessa hljóðfæla öllum fallegu nöfnum á við "dóp framtíðarinnar". Ef ég á að segja sjálfur frá þá finnst mér þetta nú bara vera hið argasta scam og ég trúi því ekki að þetta virki fyrr en ég fæ staðfestingu á því að einhver fái vímuáhrif við að hlusta á þetta.

Prófið að skoða síðuna og ef þið viljið er auðvelt að komast yfir alla "skammtana" á isohunt.com með því einu að slá inn i-doser.

Skemmtið ykkur í neyslunni.
3 Comments:
Blogger Halla said...
:D snilld. Láttu mig vita hvernig framhaldið verður af þessari neyslu þinni.

Anonymous Nafnlaus said...
www.saa.is

Anonymous Nafnlaus said...
Já ég er nú enn bara að fikta, hef ekki meikað heilan skammt ennþá. Skal láta þig vita þegar ég fer alla leið, dett djúpt ofan í þetta.