Suscito
Imagination is more important than knowledge
1.5.06
Fótbolti, ojjj?
Þannig er mál með vexti að Gummi kom hlaupandi æstur að mér áðan öskrandi eitthvað á mig um fótbolta og eftir að hafa hlustað á hann í smá stund og síðan þurrkað af mér slefið sem hann frussaði yfir mig þá ákvað ég að líta á það sem kappinn hafði að segja:

http://syn.visir.is/?pageid=1457

Ég hef aldrei farið á fótboltaæfingu á ævi minni og ég hef mjög takmarkaðann áhuga á fótbolta, þ.e.a.s. mér finnst fínt að spila hann en að horfa á hann er eitthvað sem er mér æðra. Ég hef samt enga sérstaklega andúð á fótbolta þannig séð en á listanum: tölvuforritun, myndasögum, fiðrildum, frímerkjum, efnafræði, hersögu, hlutverkaleikjum, samkvæmisdönsum, kotru, Júróvisjón, kóngafólki, ljóðlist o.fl. þá held ég að það sé alveg eitthvað sem höfðar til mín (a.k.a. nörd) en ég hef samt ekki áhuga á frímerkjasöfnun og fiðrildum...

Það væri örugglega gaman að vera með e-m guttum í liði, en aldurinn er 18-28, kannski heldur mikill aldursmunur. "Umbreytast á einu sumri í fitt og flotta íþróttahetju sem eftir verður tekið og allir munu þekkja."

Spurningin er: Ætti ég að skrá mig?

Hömmm?

Btw. eitthvað frá Hlyni sem honum lá á hjarta:

http://www.helpwinthisbet.com/
6 Comments:
Anonymous Nafnlaus said...
jájájá skráðu þig..HELL YEAH:D

Anonymous Nafnlaus said...
Skráðu þig. I dare yah :P
Ébúnað vera að spjalla við SmarterChild bottann, og það er yndislegt:

Sigtryggur says:
What are you doing, Dave?
- SmarterChild - says:
Not much. You?

Sigtryggur says:
Kiiill meee...
- SmarterChild - says:
"Me me me me me."

Whatever!

Gaman að þessu ^-^

Anonymous Nafnlaus said...
Prófaðu: Show me a picture of you :D

...eða ertu kannski búinn að því? ^^

Blogger Halla said...
girlfrieeend!!

p.s. af hverju ertu með mynd af gumma ?










p.s. hahahhaha

Anonymous Nafnlaus said...
Meeeeeeeeen!

p.s. hahahahahahahaha :D:D::D:D::DDDDDdddd

En þú sagðir ekki hvort ég ætti að taka þátt eða ekki Halla? :O

Anonymous Nafnlaus said...
"mynd af gumma"
AHAHAHAHAHAH! HAHAHAHAHAH! HAHA!

SETTU HANA AFTUR UPP!
CAPS LOCK

Taktu þátt! Þú ert samt örugglega of góður í fótbolta,
þannig að þú lætur eins og þú getir ekki neitt ef þú ferð í prufu.