Suscito
Imagination is more important than knowledge
27.3.06
Sniglar
Í dag í þessari vetrarbraut í þessu sólkerfi á jörðinni í Evrópu á Íslandi í Reykjavík í skólanum í MR í stofu 3 í Casa Christi í líffræðitíma lærðum við um hvorki meira né minna en skoplega ásýnd sköpunarverks Guðs...

...Allavega túlkaði ég tímann þannig, kannski ekki alveg svona langsótt en þegar ég leit niður á glósurnar sem ég hafði í höndunum ákvað ég að lesa aðeins meira um lindýrin sem við vorum einmitt að tala um í tímanum, og viti menn! Hversu ógeðfellt, truflandi, ógnvekjandi og hræðilegt ætli það sé að lifa lífinu með typpi á hálsinum?

Ekki aðeins þurfa sniglar að lifa vesældar lífi þar sem þeir skríða ofurhægt og eru slímugir og [Eitthvað mega skrýtið sem ég veit ekki um snigla hér]... heldur eru þeir með typpi á hálsinum Oo...

Mér langaði bara að deila þessu með ykkur hinum sem voru ekki þarna eða *hóst* tóku ekki eftir *hóst* af e-m ónefndum ástæðum...

Ekki það að líffræði sé eitthvað leiðinleg... :} (Mæli með að prófa að fara í View-source hérna)

Góð lög: Kryptonite með 3 Doors Down og Breaking Me Down með Soil
3 Comments:
Anonymous Nafnlaus said...
Hvað með að vera hrúðukadl og mega búast við því hvenær sem er að fá risatyppi í þig!

Rosalegt líf!

Anonymous Nafnlaus said...
Haha 2 gúd, só gúd...

Blogger Einar Sverrir. said...
Úff - þá væri hálsbólga orðin kynsjúkdómur og hósti þá orðinn...
...við skulum bara ekkert fara út í það...